Monday, November 13, 2006

Vill einhver vera svo vænn, ó nei... ég meina "væn eða vænn", að segja mér hvað í ósköpunum þetta kemur jafnrétti við.

<$I18NNumbelgsyrði$>:

Anonymous Anonymous said...

UMM ÞAÐ KANNSKI MÁ EKKI SETJA SVONA LANGLOKU en er þetta svona i Svíþjóð?
2. desember
Til allra starfsmanna:
Það er mér mikil ánægja að tilkynna að jólahlaðborð fyrirtækisins, verður haldin á Steikhúsi Argentína þann 20 desember.
Jólaskreytingar verða komnar á sinn stað og lítil hljómsveit mun spila vinalega og velþekkta jólasöngva. Aðstoðarforstjórinn kemur og leikur jólasveininn og hann ætlar líka að kveikja á jólatrénu. Þið megið koma með jólagjafir en þær mega ekki kosta meira en 200 krónur.
Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar friðar á aðventu.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi
3. desember
Til allra starfsmanna:
Það var ekki meiningin með tilkynningunni í gær að móðga tyrknesku vinnufélagana okkar. Við vitum að helgidagarnir þeirra eru ekki alveg samstæðir okkar. Þess vegna köllum við jólahlaðborðið framvegis árslokaveislu. Af þessum ástæðum verður ekkert jólatré og ekki jólasöngvar.
Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar góðra stunda.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi
7.desember
Til allra starfsmanna
Félagi í Anonyme Alkoholikere, AA, sem ekki vill láta nafns síns getið af eðlilegum ástæðum, krefst þess að á árslokaveislunni verði þurrt borð. Með gleði get ég sagt að það verður orðið við þessum óskum en vil um leið benda á að þurrkinn eftir veisluna get ég ekki ábyrgst.
Þar að auki verða ekki gefnar jólagjafir því verkalýðsfélagið hefur mótmælt og telur 200 krónur allt of háa upphæð í jólagjafir.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahald
9. desember
Til allra starfsmanna
Mér heppnaðist að fá borð langt frá hlaðborðinu fyrir félaga okkar úr megrunarklúbbi fyrirtækisins. Svo fékk ég líka borð fyrir alla ólétta rétt hjá salernisdyrunum. Hommar sitja hlið við hlið. Lesbiur þurfa ekki að sitja við hliðina á hommunum, þær fá sér borð. Að sjálfsögðu fá hommar og lesbiur blómaskreytingu á borðin sín.
ERUÐ ÞIÐ NÚ ÁNÆGÐ...EÐA HVAÐ?
Tina Johansen
fulltrúi á geðveikradeildinni í starfsmannahaldi
10. desember
Til allra starfsmanna
Að sjálfsögðu tökum við tillit til þeirra sem ekki reykja. Teppi verður notað til að skipta veislusalnum í tvær deildir. Möguleiki á að hafa reyklaust fólk í tjaldi fyrir utan veitingahúsið.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi fyrir undirokaða
14. desember
Til allra starfsmanna
Grænmetisætur! Ég beið nú bara eftir að heyra frá ykkur. Mér er svo innilega, alveg skít sama hvort veislan passar fyrir ykkur eða ekki.
Við förum á Steikhúsið. Mín vegna getið þið farið til Mánans 20.desember til að sitja sem lengs frá dauða-grillinu sem þið mögulega getið. Njótið, for helvede, saladbarsins og étið ykkar hráu tómata. Og munið að tómatar hafa líka tilfinningar. Þeir æpa þegar maður sker í þá, ég hef sjálf heyrt það. Jæja svín, þarna fenguð þið á baukinn!
Ég óska öllum hvínandi góðra jóla, drekkið ykkur drullu-full, svo þið farið í kóma!
Kveðja frá "Bitchen" á þriðju hæðinni.
Til allra starfsmanna
Ég er viss um að ég tala fyrir hönd okkar allra, þegar ég óska Tine Johansen góðs bata. Það verður metið við ykkur ef þið sendið henni kort með góðum óskum á Geðdeildina. Stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að það verður ekki nein árslokaveisla eða jólahlaðborð. Þið megið taka ykkur frí allan daginn þann 20. desember á fyrirtækisins kostnað.
Gleðileg jól!
Frederik Lindstrøm
starfsmannastjóri

14/11/06 01:53  
Blogger Vallitralli said...

Jamm einmitt. Einhverntíman sá ég einhversstaðar svona gangbrautarkerlingu. Held að það hafi verið í Noregi (Brynja man það sjálfsagt).
"Hei sniðugt" sagði ég, en kommon... systematískt skipta þessu út fyrir kerlingar. Af hverju ekki dverga, einfætta, albinóa, feita, múslima og svo framvegis.
Ú á þetta segi ég.

Áslaug! þessi lýsing passar að vissu leyti en ekki alveg. Sennilega hefði enginn orðið opinberlega reiður og ekki heldur lagst inn á geðdeild heldur hefði verið haldinn krísufundur (debriefing) og málefnin rædd fram og tilbaka án þess að komast að niðurstöðu. Jafnvel sett á fót "tilraunaverkefni" sem svo yrði komið á á öllum öðrum stöðum án þess að tilraunaverkefnið væri búið að skila nokkrum árangri.

14/11/06 10:49  
Anonymous Anonymous said...

Hvað um kallinn sem vísar leiðina að neyðarútgangi ? nei ég bara spyr....

14/11/06 13:10  
Anonymous Anonymous said...

Þeir eru svo flottir svona krísufundir þar sem allir keppast um að láta ljós sitt skýna. endanleg niðurstaða yfirleitt engin en allir glaðir yfir hversu klárir og góðir þeir eru.

Best að vinda sér inn í rétt málefni. konur eru líka menn!

14/11/06 15:05  
Blogger Fnatur said...

.......og hvað með hvíta....það er aðalega svarti maðurinn sem fær að vera á þessum merkjum?

15/11/06 17:46  
Blogger Fnatur said...

Gleymdi að segja að sem kona að ég hef ekki eitt einni sek af lífi mínu fyrr en nú að pæla í hvort það sé karl eða kona eða krakki á þessum merkjum. Vil frekar að peningum sé eitt í að borga okkur konum hærri laun heldur en að svona bull. Það kemur sér betur fyrir okkur allar held ég.

15/11/06 17:49  
Blogger Vallitralli said...

"Svarti maðurinn" er, eins og "guli maðurinn" og fleiri, svo skemmtilegt hugtak.

15/11/06 17:49  
Anonymous Anonymous said...

Það finnst engum neitt mál þó að það séu í gangi herferðir og í raun opinber stefna hjá mörgum vinnustöðum og ríkisstjórnum að útrýma feita manninum! Ef við úrýmum feita manninum förum við á mis við menningu feitra.
Feiti maðurinn

16/11/06 11:53  
Anonymous Anonymous said...

halló Valli Tralli ég sakna þín.
Hvar ertu?
Er bloggið komið í jólafrí?
knús

8/12/06 13:35  
Anonymous Anonymous said...

halló Valli Tralli ég sakna þín.
Hvar ertu?
Er bloggið komið í jólafrí?
knús

8/12/06 13:35  
Anonymous Anonymous said...

Herra Valur, hvaðan kemur naflakuskið?

11/12/06 16:00  
Blogger Vallitralli said...

Svarið má finna hér og hér.

11/12/06 16:40  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home