Monday, August 14, 2006

Kosningar í nánd.

Þó svo hér hafi verið stöðnuð kommúnistapólitík í nokkrar kynslóðir virðist nú sem hlutirnir séu farnir að gerast. Búið er að stofna nýjan flokk hérna í Svíþjóð og ég er ekki að meina flokkinn sem gaurarnir sem halda úti http://thepiratebay.org settu af stað, Sjóræningjaflokkurinn. Ekki aldeilis (reyndar eru nokkrir afhopparar frá Sjóræningjaflokknum með í þessum nýja flokki). Sjálfur hafði ég búist við því að sem mótvægi við Sjóræningjaflokkinn yrði stofnaður Ninjaflokkurinn, öll þekkjum við hina aldagömlu baráttu á milli þessa andstæðu póla karlmennskunnar (ef einhver kemur af fjöllum er hægt að læra um þetta m.a. hér, hér og hér.)
Nýjasti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar er hinsvegar mun kvenlegri en þetta. Unika partiet (Einstakiflokkurinn) heitir þetta fyrirbæri og er stofnað af engri annarri en Lindu Rosing. Linda þessi er fræg fyrir margt en þó mest að vera með stór brjóst og stórar varir og hafa riðið fyrir framan myndavélarnar í “raunveruleika”þættinum BigBrother hérna í Svíþjóð.
Mér sýnist sem fólk viti ekki alveg hvernig það á að taka þessu hérna, nema þessi. Sjálfur er ég á báðum áttum.




Hér er Linda í góðum jólafílingi.

<$I18NNumbelgsyrði$>:

Blogger Fnatur said...

Já enda stutt til jóla ekki seinna vænna að fara að huga að því að fara ekki í jólaköttinn;)

14/8/06 13:40  
Blogger Vallitralli said...

Heimasíða flokksins liggur reyndar svolítið oft niðri vegna þessa.

14/8/06 15:18  
Blogger brynjalilla said...

hvar ætli maður geti keypt sér svona fallega samfellu eins og hún Linda er í?

14/8/06 16:26  
Blogger Vallitralli said...

Samfellan er sýnist mér keypt í Litalandi.

14/8/06 17:05  
Blogger Hjörtur said...

Ég held að þessir flokkar eigi miklu meiri möguleika á að vinna kosningarnar heldur en hægri-mið bræðingurinn.

14/8/06 22:29  
Anonymous Anonymous said...

valli!
thu ert skemmtilegur.
eg er med nokkrar vortur sem foru ad fjolga ser,getur thu litid a thetta,eg a svo erfitt med thad sjalf veggna offitu.svo er eg lika med ........................
bara thegar thu hefur tima.

15/8/06 13:37  
Blogger Vallitralli said...

Flokkurinn fékk heil 208 atkvæði. Linda segist ánægð og bjóst ekki við að fá fleiri en 50. Nú er stefnan tekin á EU kosningarnar. Meiriháttar

27/9/06 20:49  
Anonymous Anonymous said...

Ég í framboð, ég á nefnilega bleikan satínslopp með fjaðradúski.
Kjósið mig.

30/9/06 15:08  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home