Saturday, May 05, 2007

Ég hef aldrei fundið verri lykt en af surströmming. Hann er pínu súr á bragðið og bragðast alls ekkert ömurlega... en lyktin! Svo sannarlega ekkert til að borða innanhúss, úldið úldið úldið og viðbjóðslegt. Stakk nefinu á kaf í hákarlsdolluna til að reyna að deyfa lyktina. Fairly warned be thee, says I.

<$I18NNumbelgsyrði$>:

Anonymous Anonymous said...

Thí híhí á þig. Þetta varstu búin að setja á matseðilinn fyrir okkur, grandalausa íslendinga forðum daga, he he en sem betur fór þá reyndist ekki vera tími til að bragða á herlegheitunum.
Kannski næst ef þú ert jafn staðfastur í þessum ansk...
Þú ert flottur
knús

5/5/07 14:26  
Blogger Magnús said...

Ég smakkaði þetta fyrir svona fimmtán árum og man vel hvað það var vond lykt af puttunum lengi á eftir. Hitt fýsir mig að vita hvort maður rekur mikið við af þessu.

5/5/07 21:47  
Blogger Fnatur said...

Greinilega hrein viðurstyggð. Pant ekki smakka.
Til hamingju með nýja heimilið ;)

8/5/07 13:32  
Anonymous Anonymous said...

Velkomin heim elsku Trallinn minn og til hamingju með nýja heimilið.
Ég vænti þess að þú sért búinn að fjárfesta í nokkrum dósum af surströmming til að bjóða komandi gestum.
Þú ert flottur
knús

9/5/07 00:57  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home