Friday, October 27, 2006

Hef áður verið með tvífara"grín". Stóðst ekki mátið nú aftur.

Thursday, October 12, 2006

Ógeð!

Það kom til mín maður í dag, bosnískur, sem hefur verið að rembast við að vinna að friði undanfarin ár. Hann sýndi mér ljósmynd sem hann hafði tekið í Tívolíi í Bosníu sem mér þótti frekar ömurleg á að líta.
Þarna var brosandi og glöð ca. 6 ára stúlka sem sat í hringekju, ekki á hesti heldur á eftirlíkingu af skriðdreka. Foreldrarnir voru svo brosandi ekki langt undan: "ooo hvað hún er krúttileg..."
Raunveruleikatengsl.

Núna er allt vitlaust í landinu aflanga. Komin ný ríkisstjórn og ráðherralistinn nýbirtur. Þar má finna svarta múslimska konu, homma, tvíkynhneigðing og konu sem kann ekki að skammast sín og er ekki í neinu sambandi við það sem ég og þú köllum raunveruleikann.
Maria Borelius heitir konan sem er nýskipaður handelsminister (viðskiptamálaráðherra eða eitthvað slíkt) og það varð uppi fótur og fit þegar upp komst í skeinibleðlunum (sem gerðu gott grín í gær fyrir leikinn að segja að nú væri Svíþjóð að fara að keppa við Usland í fótbolta en uselt er sænska og þýðir aumt/ömurlegt) að hún hefði ráðið til sín barnfóstrur á síðasta áratug síðustu aldar og borgað þeim svart. Út af fyrir sig er það ólöglegt og ekki sniðugt að viðskiptamálaráðherra verði uppvís að slíku en þetta er þó þjóðaríþrótt svía sem annara að borga barnfóstrum svart og í sjálfu sér varla nokkuð sem maður þarf að velta sér upp úr.
Hinsvegar skeit hún ærlega á sig og alla almenna launþega landsins þegar hún gaf sína skýringu á málinu. Jú, hún og hennar maki höfðu sko aðskilinn fjárhag (ekki veit ég hvernig það virkar) og það kom í hennar hlut að borga barnfóstrum og hún hafði einfaldlega ekki efni á því að borga þeim löglega. Eitthvað þótti mönnum þetta skrítið þar sem hún var með 35.000 sænskar á mánuði og makinn 130.000 SEK á mánuði að meðaltali allan þann áratug sem um ræðir. Hálfviti.

Það er misjafnt sem á mennina er lagt og hversu vel menn átta sig á áhrifum hins sálfélagslega á líkamann. Ung pólsk kona kemur til mín af því það er alltaf að líða yfir hana og henni er svo illt í brjóstkassanum, skilur ekkert í þessu. Svo kemur í ljós eftir all langan tíma að fyrrverandi maðurinn hennar hefur verið að koma og lemja og nauðga henni af og til og sennilega líka 4 ára gamalli dóttur þeirra og írösk fjölskylda mannsins verið að hóta henni lífláti og/eða sýruskvettum.
Í tímanum þar á eftir voru svo miðaldra par sem grætur allan tímann af vanlíðan yfir því að hundurinn þeirra hafi greinst með hvítblæði og þau hafi því þurft að aflífa hann.

Saturday, October 07, 2006

Öfgar, mannhatur og hótanir skila árangi

Gott að sjá að barátta og hótanir öfgasinnaðra trúarleiðtoga skila árangri.