Tuesday, January 30, 2007

Pössum okkur á kynvillumúsík!

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum vill guð að forðumst þessar hljómsveitir en þessar eru guði þóknanlegar.
Gott að vita að maður þarf ekki að fara á mis við dúndurmúsík þó maður vilji forðast að breytast í kynvilling.

Thursday, January 25, 2007

DE E NAJS!

Áhugamenn um skænsku og/eða gröfur og traktora mega ekki láta þetta framhjá sér fara. Þetta þykir mér fyndið og þökk sé Lilý barnabarni og alnöfnu núllbekkjarkennarans míns (sem ég man lítið eftir nema mér þótti hún rosalega gömul og með yfirvararskegg) fyrir að benda mér á þetta.
Menn geta svo velt því fyrir sér hversvegna manninn dreymir um að keyra Caterpillar 994 með joystick fyrir utan þá staðreynd að það er najs. Svarið sér maður hér og hér.

Ég get næstum svarið að það er stærra undir þessu kvikindi en Orra, de e de som ja e proudof.

Wednesday, January 03, 2007


Hákarlsdrengurinn á góðan dag

Börnin stilltu sér upp á bakkann og sundkennarinn blés í flautuna. Börnin stungu sér til sunds og þeystust áfram. Fljótastur allra og fyrstur í mark var Hákarlsdrengurinn, ekki af því að hann var hákarl heldur af því að hann átti góðan dag.
Þar er stór munur á.

Monday, January 01, 2007

Gleðilegt nýtt ár !